Leiðbeiningar fyrir byrjendur.


Endilega skoðið. Allar ábendingar eru vel þegnar.
___________________________________________

Hvað er copy/paste?

“Copy” merkir að taka afrit af einhverju og “paste” þýðir að líma. Til að nota þennan möguleika þarf að velja þá mynd eða þann texta sem á að afrita, smella með hægri músarhnapp á hana/hann og velja “copy”. Svo er farið á þann stað þar sem myndarinnar/textans er óskað og aftur hægrismellt og valið “paste”.


___________________________________________

hvað er 8 og 9 liður?

Þegar talað er um 8. og 9. lið, eða aðra liði, er átt við númeruðu liðina í ferlinu við að búa til heimasíðuna. Þegar valið er “Búðu til eða breyttu heimasíðu” finnurðu þessi númer. Við 8. lið stendur: “Fyrirsögn á heimasíðuna” og við 9. lið stendur “Undirfyrirsögn á heimasíðuna.”


___________________________________________

Hvað er urrl addressa?

Url adressa er nokkurs konar heimilsfang myndanna á vefnum. Þegar við fáum lánaðar myndir frá öðrum síðum notum við gjarnan url adressu. Þá er hægrismellt með músinni á myndinni sem á að fá lánaða, þar er properties valið og þar finnst url adressa. Þá þarf að copera urlið og setja á milli gæsalappanna í þessum kóða: [img src=""] Svo er allur pakkinn settur þar sem hann á að vera á heimasíðunni og myndin ætti að vera komin á sinn stað.


___________________________________________



save myndir vesen?

Ertu að reyna að ná í myndir og geyma á harða disknum hjá þér, en þær seivast allar í bmp ?? prufaðu þá þetta. Farðu í tools og þaðan í internet options og svo í temporary internet files og gerðu delete files ,gæti tekið smá stund en þetta þarf ég að gera reglulega til að hreinsa út´því annars save tölvan allar myndir í bmp prófaðu allavega.


___________________________________________

Linkur með mynd:

Til að búa til link þannig að þú smellir á myndina og farir þannig á einhverja síðu þá gerir þú svona skrifar [A HREF="hér kemur urlið á síðunni"][hér kemur slóðin á myndina(fæst með því að fara í albúmið og smella þar á tákn sem lítur svona út<>)og svo lokar þú þessu með"][/A] Þá ætti kóðinn að líta svona út:

[A HREF="http://www.barnaland.is/barn/4513"][img src="/album/img/1220/200361012633_3.jpg"][/A]

Linkur með texta:

Setur slóðina á viðkomandi síðu þar sem er http://www.barnaland.is/barn/2100 passa að það séu gæsalappir utan um og svo þar sem stendur Hekla kemur ykkar texti

[a href="http://www.barnaland.is/barn/2100"]Hekla[/a]

Til að hafa þarna póstfang í stað links á síðu þá er einfaldlega gert mailto:einhver@einhver.is inn í gæsalappirnar í staðinn fyrir slóðina á einhverjasíðu og virkar þetta á báðar aðferðirnar hér að ofan.
___________________________________________



Svörtu kassarnir utan af myndu ????

Hvernig er hægt að fjarlægja svörtu kassana utan af myndunum? Það er stór

spurning! Ef þú ert að taka myndina úr albúminu þínu skaltu láta hana birtast, fara í album og finna url-adressuna þar og gera eins og sagt er hér að ofan. Annars virðist vera að stundum sitji þessir svörtu kassar fastir og lítið sé hægt að gera í þeim…þá er bara spurnin um að finna sér nýja mynd!
___________________________________________

“Gæsalappirnar” skipta miklu máli í öllum kóðum. Textinn á að koma á milli þeirra.


___________________________________________

Hvernig set eg inn bakgrunn sem ég finn á síðu hjá öðru barni?

Þú finnur bakgrunninn, hægri smellir á hann og segir "save background as" og velur þér stað í tölvunni þar sem þú vilt geyma hann. Svo ferðu inn á þitt heimasíðusvæði, í "breyta heimasíðu" og í skrefi 2:2 færðu að velja bakgrunn. Þar velurðu "nota eigin bakgrunn" og "senda inn bakgrunnsmynd". Þá þarftu að browsa/leita að bakgrunninum í tölvunni hjá þér og svo vistar þú. Þá verður nýji bakgrunnurinn sjálfkrafa bakgrunnur á þinni síðu.
___________________________________________

Hvernig í ósköpunum get ég sett inn hreyfimyndir og teiknimyndir hingað og þangað um síðuna????

Þú coperar kóðann og setur þar sem þú vilt hafa myndina (í lið 11 eða 13) Url-adressa myndarinnar er svo sett á milli gæsalappanna í stað URL-ADDRESS Hvernig á að ná í url adressur? Mynd fundin, smellt með hægri músarhnappnum á hana, valið properties og urlið coperað.
___________________________________________



Léttar leiðbeiningar fyrir bakgrunnsgerð með photoshop og paint shop pro.


Ef þú ætlar að gera svona bakgrunn eins og er hjá mér á síðum 2100
og 6286 í photoshop þá byrjarðu á að oopna myndirnar sem eiga að vera til hliðar og velur svo hring um það svæði sem á að sjást og ferð svo í selections og select inverse og svo á sama stað í feather og þá geturðu valið hvað mikið ég hef verið að velja ca 10 (bara prufa sig áfram) svo ferðu í edit og clear og þá verða myndirnar svona eins og þú sérð á bakgrunninum mínum. svo opnarðu nýtt skjal og ég hef það 1548 á breidd og kannski 800 á hæð fer eftir fjölda mynda og litar það eins og þú vilt hafa það ég gerði það í sama lit og er utan um litlu myndirnar og svo er bara að pastea myndirnar inná (ath. að minnka þær niður í passlega stærð mér fannst hæfilegt að hafa þær c.a. 5-6 cm á hæð og sviað á breidd.). Svo gerði ég stóru myndirnar á sama hátt og setti þær inn á venjulegan hátt þ.e. í mynd 1 og mynd 2 kassana í breyta heimasíðu og þá lítur þetta allt út fyrir að vera ein heild.
Á nánast sama hátt er hægt að gera bakgrunn í Paint shop pro þ.e. með því að opna nýtt skjal og hafa breiddina 1548 pixla á breidd og svo hæðin bara eftir því hve margar myndir eiga að vera í röndinni. Svo er um að gera að prufa sig áfram með effects í því forriti t.d. er buttonise skemmtilegur möguleiki, bara um að gera að vera óhræddar að fikta. Eina sem þarf að passa er að savea með því að gera save as svo þú sért ekki að vista yfir original myndina.

Til að minnka myndir í paint shop pro er valið image úr flipanum efst og þar er svo valið resize og opnast þá gluggi sem býður upp á að þú veljir stærð fyrir myndina annað hvort í pixlum eða cm.
Í Photoshop er þetta gert með því að velja image úr flipanum efst og svo image size og opnast þá gluggi svipaður og sá sem lýst er hér að ofan.
Góð stærð fyrir ljósmyndir á heimasíðum er ca. 480*640 svo að myndirnar verði ekki of þungar til að skoða en þá gildir það sama og hér að ofan að gera save as svo þú eigir originalinn í fullum gæðum áfram t.d. til útprentunar og þá er sniðugt að hafa bara möppu í my documents sem heitir t.d. Heimasíðan og vista þar myndirnar eftir að þær hafa verið minnkaðar og þá ertu ekkert að rugla þessu saman.
Til að taka út eitthvað ákveðið svæði í myndinni t.d. ef þú vilt taka það sem er í kringum andlit barnsins út (svipað og ef þú klippir utan af ljósmynd) þá er verkfæri í báðum þessum forritum sem heitir crop tool og virkar þannig að þú velur kassa um það svæði sem þú vilt með þessu tóli og dekkist þá svæðið í kring en það er svæðið sem þú "klippir af" svo í photo shop þá hægri smellirðu og velur crop og klippist þá utan af myndinni í Paint shop pro þá tvísmellirðu inní svæðið og "klippist þá utan af.


munið það þarf að save bakgrunninn sem jpg skjal.


Höfundur: www.barnaland.is/barn/2100 og 6286


ef eitthverjar spurningar vakna hjá þér eða þig vantar hjálp þá getur þú sent fyrirspurnir til scout Hér!



Einfaldur bakgrunnur með mynd


Unnið með Adobe photoshop 5,5 fyrir windows 1. Opnið myndina.
2. Finna réttu stærðina. Image-size (efri tölurnar, with) Það sem þarf að hafa í huga er að hæðin skiptir ekki máli heldur að breiddin á að vera 135 pixels(muna að haka í constrain proportions annars bjagast myndin). En þið verðið að muna hvað hæðin er X pixels. (fer allt eftir lögun myndarinnar)
3. Búa til annað skjal með File-new. Breiddin, with á að vera 1110 pixels. Og hæðin, Height X pizels (X=hæðin sem þú fékkst)
4. Nú ertu með tvö skjöl opin og það sem þarf að gera er að sameina þau.
5. Vertu með myndina virka. Farðu fyrst í Select-all farðu svo í Edit-copy.
6. Gerðu nýja ramman virkan og Edit-paste
7. Þá er mynd í miðju nýja rammans og það sem þarf að gera er að færa hana á endann vinstra megin. Með valmynd move tool. (mynd af ör og kross).
8. Þegar þú ert orðin ánægð með myndina þá þarf að velja liti í bakrunn með litablandaranum, það eru tveir litareitir í tækjastikunni, velja þann efri(foreground colour). Veljið svo fötuna og hellið yfir hvíta flötinn.
9. Sameina myndirnar. Veljið layer-flatten image. Svo file-save. Og hafið þetta sem jpg skjal.

Höfundur: www.barnaland.is/barn/4365

Þetta eru ágætar leiðbeiningar fyrir fólk til að byrja með en svo er um að gera að fikta sig áfram og hafa gaman að 